Innlent

Samskip orðið stærra en Eimskip

Samskip er orðið stærra en Eimskip. Í dag var tilkynnt um kaup Samskipa á hollenska skipafélaginu Geest. Áætluð velta Samskipa eftir kaupin á hollenska skipafélaginu Geest verða um 45 milljarðar króna sem þýðir að veltan tvöfaldast frá því sem nú er. Félagið verður dótturfélag Samskipa og annast skipaflutninga félagsins í Evrópu. Eftir kaupin verða Samskip með 24 skip í föstum áætlunarsiglingum og dimmtán skip í öðrum verkefnum. Skrifstofum félagsins fjölgar um tólf og verða 45 talsins í nítján löndum. Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, segir kaupin gera það að verkum að félagið verður stærsta félagið í flutningum innan Evrópu. Eftir kaupin á félaginu eru Samskip orðin þriðja stærsta gámaflutningafyrirtækið í Rotterdam, stærstu vöruflutningahöfn Evrópu. Knútur segir að Geest verði rekið áfram undir sama nafni, enda sé það mjög sterkt nafn. Auk þess verða flutningar Samskipa innan Evrópu reknir undir nafni Geest. Eimskip átti í viðræðum um kaup á hollenska skipafélaginu þar til fyrir viku síðan en forsvarsmenn Eimskipa segja að verð félagsins hafi verið of hátt. Kaupverðið er ekki gefið upp þar sem félagið er einkahlutafélag og eigendur vilja hafa það fyrir sig en Knútur segir þetta stóran bita á íslenskan mælikvarða. Ársvelta Geest er upp á tutttugu milljarða og hefur sýnt ágætis afkomu undanfarin ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×