Innlent

Gæslan siglir framhjá sköttunum

Landhelgisgæslan keypti 1.335 þúsund lítra af skipagasolíu á varðskipin í fyrra og var öll sú olía keypt í Færeyjum. Með þessum viðskiptum sparaði Landhelgisgæslan 14 milljónir króna vegna þess að hún þarf hvorki að borga virðisaukaskatt né flutningsjöfnunargjald, hvorki í Færeyjum né á Íslandi. Tollstjórinn í Reykjavík, Snorri Olsen, segir að sú hefð hafi skapast að ekki þurfi að greiða 24,5 prósenta virðisaukaskatt og flutningsjöfnunargjald upp á 15 aura kílóið af olíu sem keypt er erlendis meðan olían er ekki flutt milli skipa eða í land. Þessi hefð hafi skapast af praktískum ástæðum. Erlendar útgerðir þurfa ekki að greiða opinber gjöld hér á landi þar sem um útflutningsviðskipti er að ræða. Sama gildir væntanlega þegar Íslendingar kaupa olíu í Færeyjum. Landhelgisgæslan sparar sér því skatta og skyldur á olíuviðskiptum við Færeyinga auk þess sem olíuverðið er hugsanlega lægra. Heildareldsneytisviðskipti Landhelgisgæslunnar námu um 70-100 milljónum í fyrra og er því ljóst að þjóðarbúið og Flutningsjöfnunarsjóður hafa farið á mis við stórar fjárhæðir. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að olía hafi stundum verið flutt milli skipa ef ekki hafi verið til fyrir olíu hjá stofnunni en olía hafi ekki verið flutt beint heim frá Færeyjum til að dæla á önnur skip, til dæmis varaskipið Óðin sem alltaf liggur til taks í Reykjavíkurhöfn. Georg ætlar ekki að sætta sig við hátt olíuverð hér á landi og hyggst beina olíuviðskiptum stofnunarinnar til Færeyja meðan olíuverð er hátt innanlands. Hann ætlar þó ekki í stríð við olíufélögin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×