Umsóknin ekki dregin til baka 3. mars 2005 00:01
Breska verslanakeðjan Iceland hefur ekki enn dregið umsókn sína til baka um einkaleyfi á orðinu Iceland í löndum Evrópusambandsins. Stjórnarformaður Iceland segir að það verði gert en lögmaður íslenskra hagsmunaaðila segist ekki hafa fengið staðfestingu á þessu hjá fyrirtækinu, þó svo að eftir því hafi verið leitað. Breska keðjan Iceland hefur um langt skeið unnið að því að fá einkaleyfi á notkun orðsins Iceland á ákveðnum sviðum viðskipta innan Evrópusambandsins. Mörgum íslenskum fyrirtækjum, hagsmunasamtökum og íslenskum stjórnvöldum hrýs hugur við þessu og telja þetta rýra möguleika íslenskra fyrirtækja til markaðssetningar afurða sinna. Frestur til að andmæla þessu rann út hjá einkaleyfastofu Evrópusambandsins þann 22. febrúar. Hins vegar brá svo við, eftir að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fór þess á leit við forsvarsmenn keðjunnar að þeir drægju umsókn sína til baka, að forstjóri fyrirtækisins sendi forsætisráðherra bréf þann 15. febrúar og sagði að þeir væru fúsir til að láta af þessum áformum sínum utan Bretlands. Lovísa Jónsdóttir lögmaður, sem fer með málið fyrir hönd íslenskra fyrirtækja, segir hins vegar að engin staðfesting hafi fengist á þessum fyrirætlunum Iceland, og að Íslendingar hafi andmælt umsókn Iceland til Evrópusambandsins fyrir 22. febrúar. Hún segir að stjórn Iceland hafi enn ekki dregið umsókn sína til baka og sé væntanleg hingað til lands til fundar við stjórnvöld og fulltrúa hagsmunaaðila í næstu viku um málið. Pálmi Haraldsson, formaður stjórnar Iceland, segir að búið sé að lofa því að umsóknin verði dregin til baka og að við það verði staðið. Hvenær það gerist þorir hann ekki að segja til um og segir að þetta mál sé einfaldlega ekki efst á forgangslista nýrra stjórnenda.
Fréttir Innlent Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Fleiri fréttir Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sjá meira