Innlent

Tók stungu fyrir einstæða móður

Bifhjólamaðurinn Jón Trausti Lúthersson er sagður hafa framið hetjudáð í fyrrakvöld þegar hann gekk á móti óðum hnífamanni sem ofsótti einstæða móður í Mosfellsbæ. Hann hlaut hnífsstungu nokkrum millimetrum frá hjartanu þegar Heimir Sigurðsson sat fyrir konunni sem er fyrrum sambýliskona hans. Jón Trausti var í lífshættu um tíma eftir atlöguna og í raun hársbreidd frá dauðanum. Jón Trausti er sá hinn sami sem kærður var í haust fyrir líkamsárás á Reyni Traustason, þáverandi fréttastjóra DV. Árásinni er lýst í frétt DV í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×