Innlent

Nordica vinsæl en menningin í sókn

Fimm af fyrirtækjunum fimmtán sem mynda úrvalsvísitölu Kauphallarinnar halda aðalfundi sína þetta árið á Nordica hótelinu. Þrjú kjósa Grand hótel, eitt Hótel Sögu, fjögur halda á vit menningarinnar og funda í söfnum og listasölum og tvö fyrirtæki halda sinn fund í eigin húsnæði. Níu fyrirtæki halda sína aðalfundi í salarkynnum hótela. Atorka, Flugleiðir, Íslandsbanki, Landsbankinn og Straumur stefna hluthöfum sínum í sali Nordica hótelsins við Suðurlandsbraut. Þar þykir aðstaða góð enda hótelið nýlegt og búnaður líka. Burðarás, Kögun og Össur verða hins vegar á Grand hóteli við Sigtún og halda þar í hefðir. OgVodafone fer svo í Vesturbæinn, á Hótel Sögu. Menningarsetur ýmisskonar eru vinsælir staðir til aðalfundastarfa og velja fjögur fyrirtækjanna fimmtán að halda sína fundi á slíkum bæjum. Actavis verður í Listasafni Íslands og fer ágætlega á því þar sem fyrirtækið er helsti stuðningsaðili safnsins. Aðalfundur Bakkavarar verður að öllum líkindum í Þjóðminjasafninu, KB banki heldur sinn fund í Salnum í Kópavogi og Samherji í Ketilhúsinu á Akureyri. Marel og Medcare Flaga halda hins vegar sína fundi í höfuðstöðvum sínum, Marel í Austurhrauni í Garðabæ og Medcare Flaga í Síðumúlanum í Reykjavík. Aðalfundir eru jafnan afar formlegar samkomur og sjaldnast miklir átakafundir. Gestir mæta í sínu fínasta pússi, fá ársskýrsluna í hendur og hlýða á helstu stjórnendur útlista afkomu síðasta árs og framtíðarstefnu fyrirtækisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×