Stjórnarandstaðan á villigötum 23. janúar 2005 00:01
Fréttir um að listi hinna staðföstu þjóða sé ekki lengur til undirstrikar á hvaða villigötum stjórnarandstaðan er í Íraksmálinu, að mati Sólveigar Pétursdóttur, formanns utanríkismálanefndar Alþingis. Hún segir stjórnarliða aldrei hafa efast um að rétt hafi verið staðið að ákvörðun um stuðning Íslands við innrásina í Írak en Eiríkur Tómasson lagaprófessor sagði í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi að þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hefðu haft fulla lagalega heimild til þess að taka einir þá ákvörðun að styðja innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Sólveig segir enn fremur að hún sé sammála yfirlýsingu Eiríks enda sé hann sérfræðingur í stjórnskipunarrétti og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands. Aðspurð hvaða áhrif hún telji að yfirlýsing Eiríks og sú frétt, að listi hinna staðföstu þjóða sé ekki lengur til, hafi á málflutning stjórnarandstöðunnar segir Sólveig að það sé ljóst að fréttirnar hafi engin áhrif á utanríkisstefnu Íslands en þær undirstriki á hvað villigötum stjórnarandstaðan hafi verið í sínum málflutningi í Íraksmálinu. Hún hafi hamast á málinu og nánast tekið það vikulega upp á Alþingi og hafi aðallega byggt á þeirri forsendu að Ísland skuli tekið af lista hinna staðföstu þjóða, sem sé ekki lengur til. Aðspurð hvort hún telji yfirlýsingu Eiríks Tómassonar hafa áhrif á umræðuna segist Sólveig svo vera, að minnsta kosti hafi hún áhrif á málflutning stjórnarandstöðunnar. Stjórnarliðar hafi aldrei efast um að rétt og eðlilega hafi verið staðið að málinu af hálfu íslenskra stjórnvalda. Hins vegar hafi fjarað undan rökum stjórnarandstæðinga.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira