Stuðningurinn aldrei ræddur 20. janúar 2005 00:01
Veturinn 2002 til 2003 voru málefni tengd Írak einungis til umræðu á tveimur fundum utanríkismálanefndar. Á hvorugum þeirra var ræddur hugsanlegur stuðningur Íslendinga við innrásina í Írak heldur var einungis rætt um tiltekin mál er vörðuðu skýrslu vopnaleitarmanna og þingsályktunartillögu Vinstri grænna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sat Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, fund utanríkismálanefndar 19. febrúar. Hann gerði nefndinni grein fyrir skýrslu Hans Blix, yfirmanns vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna, til öryggisráðs SÞ. Ekki var rætt um það á fundinum hvort Íslendingar ættu að styðja innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak ef til hennar kæmi. Síðari fundurinn fór fram 2. mars þar sem rætt var um þingsályktunartillögu Vinstri grænna um að ríkisstjórnin beitti sér gegn áformum um innrás í Írak og að Ísland stæði utan við hvers kyns hernaðaraðgerðir gegn Írak. Ekki var rætt um það á fundinum hvort Íslendingar ættu að styðja innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak ef til hennar kæmi. "Ég hef farið yfir málið í mínum gögnum og fæ ekki betur séð en að umræður um ástandið í Írak hafi farið fram tvisvar sinnum í nefndinni þennan vetur. Hinn einfaldi sannleikur er sá að það var aldrei rætt um stuðning við innrás Breta og Bandaríkjamanna í nefndinni," segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira