Deilt um greiðslur til ESB 10. júní 2005 00:01
Eins og stjórnarskrárkreppan sé ekki nóg, deila leiðtogar Evrópusambandsins líka innbyrðis um hve mikið hver eigi að borga til sambandsins. Stjórnarskrá Evrópusambandsins er dauð, lengi lifi stjórnarskráin! Það er hálfpartinn það sem evrópskir stjórnmálaleiðtogar segja þessi dægrin. Ljóst er að ekki er hægt að fá stjórnarsáttmála sambandsins samþykktan sem stendur en enginn veit hvernig er hægt að snúa sig út úr þeim vanda. Orð Jacques Chiracs Frakklandsforseta í dag voru dæmigerð fyrir það sem heyra má. Hann sagði að sættir yrðu að takast milli áætlunar ESB og Evrópubúa. Endurheimta þyrfti traust Evrópubúa á sambandinu og láta þá fá tiltrú á þessu frábæra verkefni sem væri í raun það eina sem dygði til að tryggja frið, lýðræði og mannréttindi á gervöllu meginlandinu. Til að bæta gráu ofan á svart er nú deilt um fjármál sambandsins og Tony Blair vogaði sér að stinga upp á því að niðurgreiðslur til bænda yrðu endurskoðaðar. Hætt er við því að Chirac lítist ekki vel á það enda hljóta franskir bændur dágóðan hluta niðurgreiðslnanna. Blair vill raunar allsherjarendurskoðun. Hann sagði í dag að það væri afar mikilvægt að ná samkomulagi um greiðslur til sambandsins og það yrði að vera réttlátt fyrir öll Evrópusambandsríkin, þar með talin hin nýju ríki sambandsins. Óréttlátt væri að Bretland greiddi mun hærra framlag en önnur lönd, en um þetta snerust samningaviðræður. Ekki væri hægt að útiloka sumt og segja að það verði ekki tekið til greina. Miðað við þetta er því hætt við að kreppa Evrópusambandsins minnki ekki á næstunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira