Cantoni kemur heim 10. júní 2005 00:01
Ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clementina Cantoni sneri í dag til heimalands síns en henni var í gær sleppt úr haldi mannræningja í Afganistan. Cantoni lenti á Ciampino-flugvelli í Róm nú síðdegis og var Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, meðal þeirra sem tóku á móti henni, en heimkoman var sýnd í beinni útsendingu í ítölsku sjónvarpi. Cantoni virtist við góða heilsu og hefur hún greint ítölskum fjölmiðlum frá því að komið hafi verið vel fram við hana og að konur hafi gætt hennar í gíslingunni. Cantoni var rænt 16. maí síðastliðinn í miðborg Kabúl og því var hún í rúmar þrjár vikur í gíslingu. Afganska ríkisstjórnin segir að glæpamenn en ekki íslamskir uppreisnarmenn hafi haft hana í haldi en hefur ekki veitt frekari upplýsingar um mannræningjana. Ítalska stjórnin neitar að lausnargjald hafi verið greitt fyrir Cantoni en ítölsk dagblöð segja að Ítalir hafi sannfært afgönsk stjórnvöld um að sleppa fjórum föngum í skiptum fyrir Cantoni auk þess sem einhver fjárhæð hafi verið reidd af hendi. Clementina Cantoni hafði starfað fyrir hjálparsamtökin CARE International í þrjú ár í Afganistan við að hjálpa fátækjum ekkjum þegar henni var rænt en í kjölfar ránsins efndu margar þeirra til útifunda þar sem krafist var lausnar Cantoni.
Erlent Fréttir Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Sjá meira