Innlent

Helmingun þorskveiða við Færeyjar

Alþjóða hafrannsóknarráðið leggur til að dregið verði úr sókn í þorskstofninn við Færeyjar um 50 prósent á næsta ári. Jakob Rænert yfirmaður fiskirannsókna í Færeyjum sagði í samtali við Fréttastofu útvarpsins í gær að þetta  væri afleiðing ofveiði og rangrar ráðgjafar Jóns Kristjánssonar fiskifræðings. Ef haldið yrði áfram með sama sóknarþunga og nú væri hætta á að  þorskstofninn festist varanlega í sögulegu lágmarki. "Þegar ég kom fyrst að Færeyjaráðgjöfinni árið 2001 hafði Alþjóða hafrannsóknaráðið mælt með stöðvun ýsuveiða og 30 prósenta fækkun veiðidaga," segir Jón Kristjánsson. "Ég var ósammála og ráðlagði óbreytta sókn og stofnarnir stækkuðu. Enn komu fyrirmæli um niðurskurð en ekki var farið eftir því og fjölda fiskidaga haldi óbreyttum. Enn stækkuðu stofnarnir og fóru í sögulegt hámark 2003," segir Jón. Jón kveðst hafa verið forspár um framhaldið. "Ég sagði í skýrslu minni 2003 að þá tæki þorskstofninn að minnka. Við vitum ekki hversu löng né djúp þessi niðursveifla verður, en það versta sem menn gera þegar skortur verður á fæðu er að draga úr veiðum, segir Jón Kristjánsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×