Innlent

Mynd á þili er komin út

"Þetta er menningarlegt stórvirki," segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi en í gær kom út á vegum JPV útgáfu bókin Mynd á þili eftir Þóru Kristjánsdóttur list- og sagnfræðing. Í bókinni er fjallað um íslenska myndlistarmenn frá siðaskiptum til öndverðar 18. aldar. Hún er gefin út í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og var því vel við hæfi að útgáfuteitið færi fram í Bogasal Þjóðminjasafnsins en þar fer fram sýning á mörgum verkanna sem fjallað er um í bókinni. Sýningin ber einnig heitið Mynd á þili. Margra ára rannsóknir liggja að baki verkinu og segir höfundur von sína með útgáfunni vera þá að listamenn fyrri alda verði almenningseign. Fjöldi fólks var viðstaddur athöfnina og sagði Jóhann Páll við það tækifæri að hann hefði aldrei farið út í þetta verkefni hefði hann vitað fyrir hve mikið umstang fylgdi því. "En þannig er því farið um flest þau verk sem mér þykir vænst um," bætti bókarútgefandinn hróðugur við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×