Innlent

Hringróðurinn: Hvíldi sig í gær

Kjartan Jakob Hauksson hélt kyrru fyrir fram eftir degi í gær og hvíldi sig eftir átökin í fyrsta áfanga. Það viðraði ekki vel til siglinga um morguninn en búist var við betra veðri í dag. Hann dvaldist yfir daginn í góðu yfirlæti hjá ættingjum sínum í Reykjafirði. Sundlaug er á staðnum og góður húsakostur. Kjartan var mjög þreyttur eftir að hafa róið fyrir Kögur í mótvindi. Búist er við að hann rói oftast á nóttinni frekar en á deginum, þar sem stilltara er á nóttinni. Ef vel gengur að róa í nótt gæti hann mögulega náð fram á Gjögur í fyrramálið, en það fer mikið eftir vindi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×