Vilja heilsulind að Nesjavöllum 7. júní 2005 00:01
Til stendur að hefja rekstur heilsulindar í ætt við þá sem rekin er í Hveragerði, á Nesjavöllum. Orkuveita Reykjavíkur á í samningaviðræðum við félag sem vill nýta jarðvarmann þar og segja forsvarsmenn félagsins að gangi allt vel, geti framkvæmdir hafist á næsta ári. Fyrir rétt rúmu ári samþykkti stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að leita eftir samstarfsaðila við þróun landnýtingar á Nesjavöllum. Þrír sóttu um, rætt var við tvo og að lokum var einn valinn, en það er félag í eigu þeirra Guðmundar Björnssonar læknis, sem rak heilsulind í Kópavogi um nokkurt skeið, og Guðmundar Halldórssonar, hótelhaldara að Nesjavöllum. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir Orkuveituna vera með starfsemi á Nesjavöllum þar sem hún sé með heitt og kalt vatn og eigi land. Hlutverk hennar sé að selja vatnið og leigja landið og annað sé ekki ráðgert af hálfu fyrirtækisins þar. Guðmundur segir Orkuveituna ekki munu leggja fé í verkefnið en það eigi eftir að semja endanlega um leiguna og verð á vatninu. Hann segist reikna með því að tekjurnar verði töluverðar ef verkefnið fari af stað og verði að einhverju skemmtilegu. Nú er rekið heilsárshótel í gömlu starfsmannahúsunum en heilsuhótel og lón yrðu nokkuð frá virkjuninni, í kringum Nesbúð og þar fyrir neðan. Það lá þoka yfir svæðinu í dag og þegar gufan frá virkjuninni bætist við er erfitt um vik að sína fjarlægðir. Lækurinn á svæðinu er volgur um þessar mundir en starfsfólkið í Nesbúð segir að ferðamenn eigi það til á góðviðrisdögum að skella sér út í og baða sig. Orkuveitumenn eru því greinilega ekki þeir fyrstu sem dettur í hug að gera þarna baðstað. Guðmundur Björnsson, annar Guðmundanna sem hyggjast ráðast í þetta verkefni, segir hugmyndina vera að byggja þarna upp heilsulind, frekar í ætt við þá starfsemi sem rekin er í Hveragerði en í Bláa lóninu. Þar komi fólk til lengri dvalar og meðferðar en ekki bara til að baða sig. Lónið verði þó opið almenningi. Enn má þó segja að hugmyndirnar séu á frumstigi en Guðmundur segir að ef allt gangi sé mögulegt að hefja framkvæmdir á næst ári. Eins og kunnugt er hyggst Orkuveitan einnig byggja upp frístundabyggð á landi sínu við Úlfljótsvatn. Í ljósi þessara hugmynda óskaði Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, eftir utandagskrárumræðu um fjárfestingar Orkuveitunnar fyrir utan hefðbundna starfsemi fyrirtækisins á borgarstjórnarfundi í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hvar er Khamenei? Erlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Fleiri fréttir „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Sjá meira