Innlent

Söfnun grunnskólabarna að ljúka

Söfnuninni Börn hjálpa börnum er að ljúka og hafa meira en átta milljónir króna safnast. Söfnunin, sem er á vegum ABC barnahjálpar hófst 15. apríl þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands gaf í söfnunina og forveri hans Vigdís Finnbogadóttir einnig. Það voru íslensk grunnskólabörn sem gengu á milli fólks með söfnunarbauka. Söfnunarféð rennur til Heimilis litlu ljósanna á Indlandi þar sem verið byggja á upp íbúðarhúsnæði fyrir 800 drengi, en um tvö þúsund börn búa á heimilinu í dag. Heimilið er alfarið rekið fyrir tilstuðlan stuðningsforeldra á Íslandi. Sá skóli sem stóð sig best í söfnuninni var Melaskóli en börn úr þeim skóla söfnuðu tæpri hálfri milljón króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×