Séra Hjalti verði ráðinn aftur 7. júní 2005 00:01
Foreldrar barna í Landakotsskóla skora á stjórn skólans að ráða séra Hjalta Þorkelsson aftur sem skólastjóra og veita honum fullt og óskorað umboð til að stjórna skólanum. Foreldrar lýsa yfir þungum áhyggjum af ástandinu í skólanum. Fjölmennur fundur foreldra barna í Landakotsskóla, sem haldinn var í Reykjavíkurakademíunni í gær, samþykkti yfirlýsingu til stjórnar skólans þar sem lýst er þungum áhyggjum af því ástandi sem upp er komið í skólanum. Mikil ólga hefur ríkt í skólanum eftir að séra Hjalti Þorkelsson skólastjóri sagði starfi sínu lausu í síðustu viku eftir að hafa starfað þar í 22 ár í kjölfar ákvörðunar rekstrarfélags Landakotsskóla að segja Bessí Jóhannsdóttur aðstoðarskólastjóra upp störfum. Fundur foreldra við skólann harmar sérstaklega að séra Hjalti hafi ekki séð sér fært að starfa áfram við skólann og skorar á stjórn skólans að ráða hann aftur til starfa og veita honum fullt og óskorað umboð til að stjórna skólanum þar sem það sé forsenda þess að hann haldi áfram að starfa þar. Þá er farið fram á að haldinn verði opinn fundur með stjórnendum skólans tafarlaust. Séra Hjalti telur sig ekki geta starfað með núverandi stjórn skólans vegna ágreinings um starfsaðferðir en Gunnar Örn Ólafsson, formaður rekstrarfélags Landakotsskóla, segir að fjárhagserfiðleikar skólans valdi því að ákveðið hafi verið að segja Bessí Jóhannsdóttur upp störfum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Búast má við töluverðum dembum Veður Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Innlent Fleiri fréttir Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Sjá meira