Lífið

Yoko vill vopnahlé

Yoko Ono ekkja Johns Lennons hefur átt í harðvítugum deilum við Sir Paul McCartney.
Yoko Ono ekkja Johns Lennons hefur átt í harðvítugum deilum við Sir Paul McCartney.

Yoko Ono, ekkja Bítilsins fyrr­verandi Johns Lennon, vill leggja deilurnar við Sir Paul McCartney til hliðar. Í nýlegu sjónvarpsviðtali segist hún ekki hafa neitt við McCartney að athuga.

"Ég held að samband okkar sé mjög gott um þessar mundir. Ég er viss um að næst þegar við hittumst eigi eftir að fara vel á með okkur," sagði Yoko.

"Ég ber virðingu fyrir Paul og hann ber virðingu fyrir mér fyrir að vera eiginkona Johns."

Yoko viðurkenndi að hafa átt í deilum við McCartney en bætti því við að hún væri ekki alltaf að skjóta á hann. Í síðasta mánuði sagði Yoko að McCartney semdi einföld og léttvæg lög. McCartney skaut á hana til baka og sagði að Ono væri stórfurðuleg og bætti því við að hún væri ekki sú allra skarpasta. Í sjónvarpsviðtalinu nefnir Yoko einnig aðdáun sína á Liam Gall­agh­er, sem hefur alla tíð dýrkað og dáð John Lennon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.