Ábyrgðarmaður og ritsjtórn ósammála 2. nóvember 2005 16:15
Vilhjálmur Rafnsson ábyrgðarmaður Læknablaðsins segist ekki ætla að segja af sér ábyrgðarmennsku eins og ritnefnd Læknablaðsins lagði til á fundi síðastliðinn mánudag. Kári Stefánson hefur nú kært Vilhjálm til siðanefndar lækna vegna greinar Jóhanns Tómassonar "Nýi sloppur keisarans" sem birtist í septemberútgáfu Læknablaðsins. Grein Jóhanns er ádeila á ráðningu Kára Stefánssonar á taugadeild Landsspítala og þar fer hann hörðum orðum um bæði náms- og starfsferil Kára. Í yfirlýsingu sem Vilhjálmur sendi frá sér í dag segir hann að Jóhann beri sjálfur ábyrgð á skrifum sínum. Hann bendir jafnframt á að eftir birtingu greinarinnar hafi risið deilur í ritnefndinni um það hvernig og hvort bregðast skyldi við óskum um að draga greinina til baka og einnig hvort beðist skyldi afsökunar. En í millitíðinni hefði stjórnum bæði Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur, sem eru eigendur Læknablaðsins, borist formlegar kröfur um slíkt frá lögmanni Kára Stefánsonar ásamt fyrirspurnum um birtinguna. Í októberhefti Læknablaðsins gáfu fjórir ritnefndarmenn frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að birting greinarinnar hafi verið mistök. Einnig sögðu ritnefndarmennirnar að þeir telji ritnefndina vanhæfa til þess að fjalla um málið. Í yfirlýsingu Vilhjálms kemur einnig fram að einn ritnefndarmaður sagði af sér síðastliðinn mánudag og að á fundi útgáfustjórnar sama dag hafi þrír ritnefndarmenn komið með tilmæli um að öll ritnefndin ásamt Vilhjálmi Rafnssyni, ábyrgðarmanni blaðsins segði af sér. Vilhjálmur segist ekki vera sammála þeirri tillögu og ætlar því ekki að segja af sér og einnig bendir hann á að ekki hafi enn borist formlegar úrsagnir ritstjórnarmanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Sjá meira