Segir helförina sögusögn 14. desember 2005 15:45 MYND/AP
Helförin er sögusögn sem var notuð sem átylla til að skapa gyðingaríki í hjarta hins íslamska heims. Þetta sagði forseti Írans í morgun og tókst með því enn og aftur að fá leiðtoga heimsins upp á móti sér. Mahmoud Ahmedinajad hefur ekki setið lengi sem forseti Írans. Honum hefur engu að síður tekist að baka sér óvild um allan heim í þrígang með ummælum sem eiga sér vart hliðstæðu hjá leiðtoga ríkis undanfarna áratugi. Í október sagði hann að réttast væri að má Ísraelsríki út af landakortinu og í síðustu viku sagði hann að flytja ætti Ísrael frá Mið-austurlöndum til Evrópu. Í morgun sagði Ahmedinajad svo helförina vera langlífa sögusögn sem væri heilagri en guð almáttugur. Í landi gyðinga væri í lagi að efast um tilvist guðs, en ef einhver vogaði sér að efast um helförina yrði allt vitlaust. Ummælin lét forsetinn falla í sjónvarpsávarpi í borginni Zahedan í suðausturhluta Írans í morgun. Þar ítrekaði hann þá skoðun sína að Evrópa, Bandaríkin eða Kanada ættu að finna hjá sér landsvæði til að hýsa Ísraelsríki. Ríkisstjórn Ísraels sendi strax frá sér yfirlýsingum, þar sem alþjóðasamfélagið er hvatt til að opna augun fyrir hættunni sem heiminum stafi af Írönskum stjórnvöldum og möguleikanum á að þau komi sér upp kjarnavopnum. Evrópusambandið hefur fordæmt ummælin og ráðherra Breta fyrir sambandið segir ummæli sem þessi ekki eiga heima í alþjóðastjórnmálum.
Erlent Fréttir Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Erlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Fleiri fréttir Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Sjá meira