Innlent

Fischer er í einangrun

Hvorki Sæmundur Pálsson né Miyoko Watai fengu að hitta skákmeistarann Bobby Fischer í gær. Fischer er í einangrun og fær hvorki heimsóknir né að taka við símtölum. Engin ástæða hefur verið gefin fyrir einangrun Fischers en fréttastofa Bylgjunnar sagði frá því í gær að Watai, unnusta Fischers, hefði kært til japanska dómsmálaráðuneytisins þá ákvörðun að hún fái ekki að hitta hann. Guðmundur G. Þórarinsson, Einar S. Einarsson og Garðar Sverrisson komu til Tókýó í gærmorgun og munu þeir, ásamt Sæmundi og öðrum stuðningsmönnum Fischers, halda blaðamannafund í Japan í dag. Þá verður útskýrt á hvaða forsendum sendinefnin hefur ferðast hálfan hring í kringum hnöttinn. Verið er að kanna hvort hægt sé að afhenda lögfræðingi Fischers íslenska vegabréfið, og er reiknað með einhverjum svörum frá Þórði Ægi Óskarssyni, sendiherra Íslands í Japan, á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×