Innlent

Opnað fyrir skil vefframtala

Opnað hefur verið fyrir skil vefframtala á Netinu. Í fyrra skiluðu 82% einstaklinga hér á landi framtali sínu með þeim hætti sem er hæsta hlutfall innan OECD. Frestur til að skila skattframtölum rennur út 21. mars næstkomandi en hægt er að sækja um frest og fá öðrum degi úthlutað. Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri segir nokkrar breytingar vera á framtalinu frá síðustu skilum. Helstu breytingarnar sem snúa að einstaklingum eru varðandi íbúðalánin þar sem brugðist er við hinni breyttu stöðu á þeim markaði. Núna getur fólk gert grein fyrir lánum sem tekin eru að hluta til vegna uppgreiðslu á íbúðalánum og að öðru leyti vegna annarra aðstæðna.  Indriði segir að innan fárra ára þurfi ekki lengur að telja fram; það dugi einfaldlega að opna og samþykkja framtalið. Það byggist á því að Ríkisskattstjóri fái upplýsingar frá bönkum og fjármálastofnunum með sama hætti og nú er gert í nágrannalöndunum.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×