Innlent

Margar hugmyndir um miðbæinn

Metþátttaka var í hugmyndasamkeppni um miðbæ Akureyrar, „Akureyri í öndvegi“. Hundrað og fjörutíu tillögur bárust víðsvegar að úr heiminum sem er mun meiri þátttaka en búist var við. Keppnin er haldin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og beinist einkum að fagfólki á sviði byggingarlistar og skipulags, þótt þátttaka hafi verið öllum opin. Aðstandendur hugmyndasamkeppninnar vonast til að hún leiði til nýrrar og ferskrar heildarsýnar um uppbyggingu og þróun miðbæjar Akureyrar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×