Innlent

Flugmálastjórn nýtur 75% trausts

Flugmálastjórn Íslands nýtur trausts tæplega 75 prósenta þjóðarinnar samkvæmt skoðanakönnun Gallups. Háskóli Íslands nýtur ein opinberra stofnana meira trausts en Flugmálastjórn, af þeim stofnunum sem Gallup kannaði. Spurt var: „Hversu mikið eða lítið traust berð þú til Flugmálastjórnar.“ Aðeins 1,7 prósent aðspurðra sögðust bera mjög lítið traust til stofnunarinnar, 4,8 prósent sögðust bera lítið traust til hennar en tæplega 48 af hundraði sögðust bera frekar mikið traust til stofnunarinnar. Rúmlega 27% sögðust bera mjög mikið traust til Flugmálastjórnar. Ekki er marktækur munur á skoðunum fólks eftir kyni, aldri, búsetu, fjölskyldutekjum né stuðningi fólks við stjórnmálaflokka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×