Innlent

Eldur í íbúð

Eldur kviknaði í viftu í eldhúsi í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Vesturbergi 138 í Breiðholti um miðjan dag í gær. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út en helmingurinn var kallaður aftur í höfuðstöðvar slökkviliðs þar sem ekki var um mikinn eld að ræða. Slökkviliðið náði að slökkva eldinn fljótt og örugglega. Töluverður reykur var í íbúðinni og voru sjö íbúar fluttir á Landspítala - háskólasjúkrahús vegna gruns um reykeitrun en enginn þeirra slasaðist alvarlega. Samkvæmt slökkviliðinu er ekki víst hve miklar skemmdir eru á íbúðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×