Skiptar skoðanir um afskriftir 12. júní 2005 00:01
Skiptar skoðanir eru um hversu stórt skref var stigið með afskriftum skulda fátækustu þjóða Afríku við ríkustu þjóðir heims. Einnig þurfi að auka fjárframlög því að það verði enginn saddur af niðurfellingu skulda einni og sér. Eþíópía er eitt þeirra landa sem njóta á góðs af samkomulaginu. Helmingur íbúa Eþíópíu, sem eru 73 milljónir, lifir undir fátækramörkum og þeir ná ekki fimmtíu ára meðalaldri. Þeir íbúar Addis Ababa, höfuðborgar landsins, sem frétt höfðu af samkomulaginu fögnuðu. Þeir sögðu að leiðtogar Afríku ættu að nota tækifærið til að breyta lífi borgaranna til hins betra. Efnahagur Eþíóipíu væri t.d. mjög bágborinn og fréttirnar boðuðu því gott. Þeir fjölmörgu sem draga lífið fram með betli gáfu lítið fyrir hið sögulega samkomulag fjármálaráðherra helstu iðnríkjanna. Þeir báðu fréttamann hins vegar um aura til að seðja sárasta hungrið. Á verslunargötunni Via del Corso í Róm er algengt að handtaska kosti um 50 þúsund krónur, eða sömu upphæð og meðalíbúi í Eþíópíu hefur til framfærslu á ári. Skiptar skoðanir voru meðal þeirra, sem þar litu í búðir, hvort niðurfelling skulda kæmi til að gagnast löndum eins og Eþíópíu, hvort fjármunir sem annars hefðu farið í afborganir af lánum til alþjóðastofnana skili sér til íbúanna. Sumir sögðust ekki treysta aðferðunum og töldu peningana ekki nýtast hinum fátæku. Mikið væri sagt en fátt væri um efndir. Aðrir sögðu að ríkari lönd ættu að koma upp uppbyggilegri tengslum en hugsa ekki einungis um að lána peninga. Enn aðrir bentu á að þetta væri eina leiðin fyrir fátæku ríkin til að laga greiðslustöðu sína og byrja upp á nýtt. Ekki náðist samkomulag á fundi fjármálaráðherra iðnríkjanna í gær um það hvort eða hvernig fjárframlög til þróunarríkjanna verða aukin. Bresk stjórnvöld vilja tvöfalda framlögin en hafa mætt mótstöðu, meðal annars frá Bandarískum stjórnvöldum. Leiðtogar iðnríkjanna, sem munu takast um það á fundi í Skotlandi um miðjan júlí, voru hvattir af Nelson Mandela á styrktartónleikum í Noregi í gærkvöld að nýta nú tækifærið. Mandela hvatti þá til að bjarga lífi barnanna í Afríku, annars yrði núverandi kynslóðar minnst sem kynslóðarinnar sem ekki hefði brugðist við þegar allsherjarneyð hefði steðjað að. Fyrir leiðtogafundinn í Skotlandi mun Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, freista þess að fá leiðtoga iðnríkjanna til að fallast á að auka fjárhagsaðstoð til fátækustu landanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Sjá meira