Innlent

Beltin björguðu

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum og keyrði út af á Norðfjarðarvegi um miðnætti aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt lögreglunni á Eskifirði slapp ökumaður ómeiddur en hann getur þakkað öryggisbeltunum fyrir það. Bíllinn er einnig lítið skemmdur og vel ökufær. Ekki er ljóst sem stendur af hverju ökumaður missti stjórn á bílnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×