Veggjatítlur í miðborginni 12. júní 2005 00:01
Veggjatítlur finnast æ oftar í gömlum húsum í miðborginni. Kaupandi íbúðar í Þingholtunum, þar sem veggjatítlur fundust, fer fram á riftun kaupsamnings. Lirfur veggjatítlunnar bókstaflega éta í sig timburhús. Kaupandi íbúðar við Óðinsgötu varð var við kvikindin skömmu eftir kaupin upp úr miðjum maí. Guðmundur Halldórsson skordýrafræðingur skoðaði aðstæður þar í dag. Hann segir götin sem lirfur títlunnar skilji eftir minna á fín naglaför. Lirfan lifi á viði og éti sig í gegnum hann, en hún geti verið mörg ár í viðnum. Í gömlum húsum þar sem rakaskemmdir eru líður veggjatítlum best. Það getur hins vegar reynst mjög erfitt fyrir húseigendur að útrýma þeim. Guðmundur segir að ef menn kaupi hús sem er fúið losi þeir sig við spýtur sem eru rakar og komi í veg fyrir að bleyta komist inn en þetta sé erfiðara þegar veggjatítlan sé annars vegar. Veggjatítlur geta flogið og segir Guðmundur að ekki sé hægt að útiloka að kvikindin geti borist í nágrannahús enda veit fréttastofa Stöðvar 2 að veggjatítlur valda usla víðar í miðborginni. Eigandi íbúðarinnar vill rifta kaupunum og aðrir eru að kanna réttarstöðu sína. Guðmundur segir títluna að finna í mjög mörgum húsum en ekki sé hægt að benda á upptök hennar. Menn geti tekið hús og brennt það en þeir séu samt ekki lausir við smithættu. Í gamla bænum leynist eflaust veggjatítla víða. Tilvikunum hefur fjölgað síðustu misseri. Guðmundur segir að eldri hús séu nú mjög vinsæl. Ungt fólk kaupi þau og geri þau upp og gangi um leið úr skugga um að veggjatítlu sé ekki að finna þar.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira