Bændur langeygir eftir rigningu 12. júní 2005 00:01
Þurrt er víða á landinu og er úrkoma síðasta mánuðinn langt undir meðaltali. Bændur á Norðurlandi og víðar eru orðir langeygir eftir rigningu. Mjög þurrt er orðið víða inn til landsins á Norðurlandi, Austurlandi, Vestfjörðum og við innanverðan Breiðafjörð. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 5,4 millímetrar síðasta mánuðinn en meðalúrkoma þar er um 20 millímetrar. Enn minna hefur rignt á Nautabúi í Skagafirði en þar hefur úrkoman mælst 3,7 millímetrar síðasta mánuðinn. Eins hefur úrkoman aðeins mælst 3,6 millímetrar í Æðey í Ísafjarðardjúpi. Sú litla úrkoma sem hefur fallið hefur nýst illa þar sem hún kemur í litlum skúrum. Aðalsteinn Hallgrímsson, bóndi í Garði í Eyjafjarðarsveit, segir jarðir orðnar þurrar og segist aðspurður vera orðinn langeygur eftir rigningu. Grasspretta hafi verið mjög lítil vegna kulda en fyrst og fremst vegna þess að ekkert hafi rignt. Moldin sé einstaklega þurr og sjaldan hafi verið eins þurrt. Þótt sáð sé grænfóðri á grassvæði þá sé hann hræddur um að það spíri mjög seint og illa nema það komi mjög mikil rigning. Aðalsteinn segist þó bíða þolinmóður eftir rigningunni því bændur viti að það komi einhvern tíma rigning. Útlit er fyrir að rignt gæti á þriðjudag á Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Það sama er ekki að segja um Norðurland en þar er búist við þurrki út vikuna en með norðanátt um næstu helgi gæti farið að rigna.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira