Innlent

Baugur stofnar styrktarsjóð

Baugur ákvað í síðustu viku að verja þrjú hundruð milljónum króna á árinu í stofnun sjóðs sem á að styrkja líknar- og velferðarmál barna en einnig menningar- og listalíf. Gert er ráð fyrir að heildarframlög sjóðsins verði 40-60 milljónir króna á ári. Gert er ráð fyrir því að sjóðurinn taki yfir styrktarstarfsemi fyrirtækisins. Jóhannes Jónsson verður formaður sjóðsins og auk hans munu Hreinn Loftsson og Ingibjörg Pálmadóttir sitja í stjórn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×