Ríkisstjórnin leitar samstöðu um varnir 15. nóvember 2005 06:00 Minnismerki sent í endurvinnsluna. Varnarliðið stóð fyrir því á dögunum að P-3 kafbátaleitarflugvél sem staðið hafði um árabil sem minnismerki á svæði varnarliðsins var rifin. Flugvélin fór í endurvinnslu sem brotamálmur. "
Það eru engar blikur á lofti um að varnarliðið sé á förum," segir Lisa Kierans, stjórnmálaerindreki hjá bandaríska sendiráðinu. Spurð um stefnu bandarískra stjórnvalda í málefnum herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli sagði Kierans að engar nýjar upplýsingar væru fyrirliggjandi. "Ég hélt að þetta snerist ekki um það hvort Bandaríkjamenn vildu vera hér heldur hvort við teldum að þeir þyrftu að vera hér vegna okkar varnarhagsmuna," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í gær. Ingibjörg bað Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra að útskýra ummæli sín frá því fyrir helgi þar sem hann lýsti því meðal annars yfir að Bandaríkjamenn yrðu ekki beðnir að vera hér ef þeir vildu ekki vera hér. "Nú eru liðin fimm ár síðan samningurinn rann út og ég taldi ástæðu til að ræða þetta mál. Það er okkar skoðun að hér þurfi að vera sýnilegar varnir," svaraði forsætisráðherrann. Hann óskaði eftir því að Samfylkingin gæfi upp um hver stefna hennar væri í málinu því mikilvægt væri að um það næðist sem víðtækust samstaða. Ingibjörg svaraði því til að ekki þýddi að beina spjótum að Samfylkingunni, ríkisstjórnin hefði ekki skilgreint varnarhagsmuni þjóðarinnar. "Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru í vinnu fyrir þjóðina. Þeir eru ekki að skila árangri. Það er núna fyrst að renna upp fyrir þeim að ekki sé samningsvilji af hálfu Bandaríkjamanna," sagði Ingibjörg Sólrún. "Það er ástæða til að fagna hinum nýja áhuga formanns Samfylkingarinnar á þessum mikilvægu málum," sagði Geir Haarde utanríkisráðherra er hann kvaddi sér hljóðs um málið. Geir sagði að ekki væri vitað til annars en að Bandaríkjastjórn hygðist efna þann varnarsamning sem gerður var árið 1951. Nánari útfærsla á framkvæmdinni myndi finnast í viðræðum sem væru fram undan. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði að ef ríkisstjórnin væri að leita víðtækrar samstöðu um varnarmál þá væri hennar ekki að vænta úr röðum Vinstri grænna.
Innlent Mest lesið Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Innlent Fleiri fréttir Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sjá meira