Nafngiftir hafa áhrif á lyktarskyn 26. september 2005 00:01
Nafngiftir hafa áhrif á hvernig við skynjum lykt af ólíkum hlutum. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem greint er frá á vefsíðu BBC. Vísindamenn við Oxford-háskóla hafa komist að því að fólk upplifir lykt á jákvæðari hátt eftir því hvert nafnið á uppsprettu lyktarinnar er. Í tilraun sem þeir gerðu báðu þeir sjálfboðaliða um að þefa af cheddar-osti. Þeir sem þefuðu af sýnum merktum "ostur" voru hæstánægðir á meðan þeir sem ráku nefið í glas með sömu lykt en merkt "svitalykt" kvörtuðu sáran undan óþefnum. Þeir sem þefuðu af glasi sem merkt var "ostur" en engin sérstök lykt var í kváðust engu að síður hafa fundið angan af osti. Mælingar á heilastarfsemi þátttakendanna staðfestu upplifunina, mikil virkni mældist í þeim stöðvum heilans sem tengjast lyktarskyni þegar þefað var af raunverulegum osti og aðeins litlu minni þegar þefað var af andrúmslofti merktu "ostur". Vísindamennirnir telja að betri skilningur fáist á afleiðingum ýmissa sjúkdóma með rannsóknunum. Oft skaðast heilastöðvar fólks sem lendir í slysi og í framhaldinu verða breytingar á mataræði þess svo að það fitnar meira en góðu hófi gegnir. Vera má að breytingar á lyktarskyni kunni að tengjast þessu. Auk þess geta niðurstöðurnar gagnast matar- og drykkjarframleiðendum og hvatt þá til að vanda sig sérstaklega við nafngiftir á afurðum sínum.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira