Afvopnun Norður-Írlands staðreynd 26. september 2005 00:01
Síðustu vopnunum úr vopnabúrum Írska lýðveldishersins IRA hefur verið eytt. Frá þessu skýrði óháð vopnaeftirlitsnefnd í gær. Þar með ætti vopnaðri baráttu lýðveldissinna gegn Bretum og sambandssinnum að vera lokið. "Afvopnun IRA er nú staðreynd," sagði John de Chastelain, kanadíski hershöfðinginn sem fór fyrir eftirlitsnefndinni á blaðamannafundi í Belfast á Norður-Írlandi í gær. Hann kynnti á fundinum ítarlega skýrslu nefndarinnar en fyrr um daginn hafði írsku og bresku ríkisstjórnunum verið kynnt efni hennar. Þar voru rakin störf nefndarinnar síðustu árin en stærstur hluti afvopnunarinnar fór þó fram á síðastliðnum vikum eftir að IRA lýsti yfir í júlí síðastliðnum að vopnaðri baráttu sinni væri lokið. Í vopnabúrum IRA á Írlandi og Norður-Írlandi var að finna vígbúnað af ýmsu tagi en stærstur hluti vopnanna fékk herinn snemma á níunda áratugnum frá Líbíumönnum. Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, sagði afvopnunina vera tímamótaviðburð. "Margir töldu að þessi dagur myndi aldrei renna upp. Margir töldu að hann hefði fyrir löngu átt að vera runninn upp. Nú hefur það loksins gerst." Í svipaðan streng tók Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sem sagði afvopnunina eiga að greiða fyrir friði í landinu. Martin McGuinness, aðalsamningamaður IRA, taldi að nú ætti efa um afvopnun samtakanna að hafa verið eytt. "Málið snýst hins vegar um meira en vopn, það snýst um að koma friðarferlinu á skrið á ný og um framtíð Írlands." Sambandssinnar kveðast hins vegar vera langt frá því sannfærðir um að IRA hefði raunverulega afvopnast. Séra Ian Paisley, leiðtogi sambandssinna, sagði að lítið mark væri takandi á skýrslu vopnaeftirlitsnefndarinnar, sérstaklega vegna þess að IRA valdi klerkana tvo sem sitja í henni. Meþódistapresturinn séra Harold Good, sem sat í nefndinni sem fulltrúi mótmælenda, sagði hins vegar að enginn vafi léki á að afvopnunin væri staðreynd. Af þessum sökum er talið að enn verði nokkur bið á að samningaviðræður sambandssinna og lýðræðissinna hefjist á nýjan leik.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira