Klórframleiðslan til Akureyrar 2. mars 2005 00:01
Fyrirtækið Mjöll Frigg jók klórframleiðsluna á Akureyri eftir að starfsleyfi fékkst ekki í Kópavogi. Fyrirtækið hefur starfsleyfi í iðnaðarhverfi á Sjafnarlóðinni skammt frá íbúðahverfi. Verði gasleka vart við bestu aðstæður þarf að rýma hús þar sem 200 manns búa. Slökkviliðsstjórinn á Akureyri, Erling Þór Júlínusson, segist hafa meiri áhyggjur af flutningi tólf tonna klórgasbirgða í gámum landleiðina milli höfuðborgarinnar og Akureyrar en af framleiðslu klórsins í verksmiðjunni. Í húsinu hafi verið efnavinnsla árum saman. Starfsleyfið verður endurskoðað síðar í mánuðinum. "Í verksmiðjunni er um það mikið magn klórgass að ræða að við verðum að meta aðstæður og skoða hvert líklegt lágmarkstjón gæti orðið af starfseminni og hvert hámarkstjón gæti orðið," segir Erling. Komi upp gasleki og vindur sé kyrrstæður þurfi að rýma 300 metra radíus en á því svæði séu um 200 íbúar. Við verstu aðstæður gæti þurft að rýma svæði inn að ráðhúsi bæjarins og suður fyrir Glerártorg. Erling segir slökkviliðið eiga von á búnaði til að bregðast við komi upp klórgasleki eða annar efnaleki á svæðinu. Á slíkum búnaði hafi verið þörf og tengist ekki komu verksmiðjunnar. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, segir að standist fyrirtækið kröfur heilbrigðiseftirlitsins sem og lög og reglugerðir varðandi starfsemina hafi hann ekkert undan því að klaga. Erling tekur undir þau orð Kristjáns. Mikil umfjöllun varð um klórframleiðslu Mjallar Friggjar í Kópavogi vegna ótta íbúanna við umhverfisslys. Eigandi Mjallar Friggjar tjáir sig ekki um málið. .
Fréttir Innlent Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Sjá meira