Flökkusagan um kettlinga í þvottavélum sönn 28. desember 2005 20:45
Flökkusagan um kettlinga sem lenda í þvottavélum með skelfilegum afleiðingum er ekki bara sönn, heldur gerist þetta bara nokkuð oft. Dýralæknir segir nauðsynlegt að kattaeigendur hugi vel að því að Keli litli eða Snúlla séu víðsfjarri þegar þvottavélin er sett í gang. Þó tt þvottavélar, þurrkarar og uppþvottavélar séu að mörgu leyti þarfaþing sem gera okkar mannfólkinu auðveldara fyrir þá geta þessi apparöt reynst blessuðum dýrunum hættuleg. Nokkuð hefur borið á því að litlir kettlingar leyti í skjól í slíkum vélum og þá er oft voðinn vís. Katrín Harðardóttir, dýralæknir á dýraspítalanum í Víðidal, segir að nokkrum sinnum á ári hringi fólk sem hafi óvart lokað dýrið sitt inni í uppþvottavél, þurrkara eða þvottavél. Fólk þurfi að gæta sérstaklega að kettlingum sem leiti í mjúkan þvottinn hvort sem hann sé í þvottkörfunni eða opinni þvottavél. Katrín segir afleiðingarnar skelfilegar. Dýrin lifi eðlilega ekki af þvottavélaferðina og því sé sorg eigendanna oft mikil. Því sé brýnt að passa vel upp á að skilja ekki þvottavélar eftir opnar og ekki síst að gæta þess aðkettlingar liggi ekki í vélunum. Kettlingarnir sækja líka í óhreina diska í uppþvottavélum og það þarf ekki síst að passa, eins og dæmin sanna. Katrín segist aðeins þekkja eitt dæmi þess að köttur hafi lokast inni í uppþvottavél, en þá hafi hann verið að sleikja diska og lokað hafi verið á hann. Sá hafi bjargast því heimilisfólkið hafi heyrt strax í honum. Og það er ekki að spyrja að því með kisurnar eins og mennina yfir hátíðirnar: Ofátið vill bera þá ofurliði og því má greina auknar komur katta með meltingartruflanir á dýraspítalayfir jól.En það er fleira en rjómi og rækjur sem kettirnir sækja í um jól og getur reynst þeim skaðleg. Katrín segirborða utan um pakka sérstaklega hættulega því kettir geti étið þá og þeir fest í görnununum í þeim. Slík mál komi inn á hennar borð einu sinni til tvisvar á ári.
Fréttir Innlent Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira