Býður HR lóð í Urriðaholti 1. apríl 2005 00:01
Oddfellow-reglan hefur boðið Háskólanum í Reykjavík allt að þrettán hektara lóð í Urriðaholti í Garðabæ undir nýja skólabyggingu. Háskólanum í Reykjavík standa til boða tvær lóðir undir nýja háskólabyggingu, í Urriðaholti í Garðabæ og í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Fasteignasali sem fréttastofan ræddi við segir verðmæti um tuttugu hektara lóðar í Urriðarholtinu vera um einn og hálfur milljarður króna sé miðað við nýselt byggingarland í Garðabæ. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðarbæjar, segir lóðina sem skólanum standi til boða ekki vera minna virði í krónum talið en lóðin í Vatnsmýrinni án þess að hún vilji nefna ákveðna krónutölu. Stöð 2 greindi frá því að lóðin í Vatnsmýrinni væri metin á minnst fimm milljarða. Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa býður háskólanum lóðina í Urriðaholti að kostnaðarlausu. Garðabær hefur einnig gefið það út að hvorki verði innheimt gatnagerðargjöld né fasteignagjöld. Gatnagerðargjöldin ein og sér gætu numið allt að 500 milljónum króna. Eins ætlar bæjarfélagið að tryggja skólanum alla grunnþjónustu á svæðinu, svo sem leikskóla, grunnskóla, íþróttahús og sundlaug. Ekki er staðar numið þar því bærinn ætlar líka að taka þátt í uppbyggingu á háskólatorgi. Á þriðja þúsund nemendur stundar nám við Háskólann í Reykjavík eftir að hann var sameinaður Tækniháskólanum en með því var ætlunin að skapa sterkan alþjóðlegan rannsóknarháskóla sem yrði í góðum tengslum við íslenskt atvinnulíf. Í skipulagi Urriðaholts er gert ráð fyrir að í kringum skólann geti bæði þrifist rannsóknarstofnanir og hugvitsfyrirtæki sé það vilji skólayfirvalda en einnig er möguleiki fyrir skólann að vera á afmörkuðu svæði. Ekkert er því til fyrirstöðu að hægt sé að hefja hönnun bygginga. Ef háskólinn ákveður að þiggja lóðina í Garðabæ ætti að vera hægt að byrja að kenna í nýjum skóla árið 2007.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki hafi verið boðið lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Sjá meira