Hvítabirnum fækkar hratt vegna bráðnun íss á Norðurslóðum 21. desember 2005 22:00
Bráðnun íss á norðurslóðum er farin að valda dauða hvítabjarna og ekkert bendir til annars en að þeim haldi áfram að fækka. Þór Jakobsson veðurfræðingur segir að um sé að ræða óhjákvæmilega afleiðingu hlýnunarskeiðs sem verulega varð vart við fyrir fjórum árum. Talningar vísindamanna á hvítabjörnum við við Hudson flóa í Kanada benda til að stofninn hafi fallið um fimmtung á síðustu sautján árum. Undan ströndum Alaska hafa fundist skrokkar af bjarndýrum sem gefa til kynna að dýrin hafi drukknað. Þó ísbirnir séu syndir, þá eru takmörk fyrir því hve lengi þeir geta þraukað í sjónum. Þeir finna æti á ísjökum út með ströndinni en nú þurfa þeir í auknum mæli að synda, jafnvel allt upp í hundrað kílómetra eftir bráðinni. Auk þess að eiga á hættu að drukkna, geta erfiðleikar við fæðuöflun haft víðtækari áhrif. Dr. Lara Hansen, World Wildlife Fund, segir að vitað sé að kvennbirnir verða að ná ákveðinni þyngd til að eignast afkvæmi og hvítabirnir séu að nálgast þau mörk hættulega mikið. Hlýnun á norðurslóðum er staðreynd og margir, jafnvel flestir, vísindamenn rekja hana til gróðurhúsaáhrifa. En eins dauði kann að vera annars brauð, eins og Þór Jakobsson bendir á. Sjá má fréttina í heild sinni á VefTíVí Vísis.
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Innlent Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Erlent Fleiri fréttir Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ X fyllist af gríni um Ísland/Grænland Þessi hönd er um sjötíu þúsund ára gömul Verði að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ Fyrstu viðbrögð við ræðu Donalds Trump: „Ég bíð enn eftir að mennirnir í hvítu sloppunum nái í hann“ Höfuðstöðvar UNRWA í Jerúsalem rifnar Reyndu að fá dómara til að hlutast til um mál Le Pen Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Sjá meira
Fyrstu viðbrögð við ræðu Donalds Trump: „Ég bíð enn eftir að mennirnir í hvítu sloppunum nái í hann“