Skammarlega vægir dómar 9. nóvember 2005 19:33
Lögreglumenn eru afar ósáttir við átján mánaða dóm í máli manns sem lagði til lögreglumanns með hnífi. Þeir segja dóminn vægan, en löggjöfinni sé ekki um að kenna heldur nýti dómstólar ekki þær heimildir sem þeir hafi. Landssamband lögreglumanna segir lögreglumenn á Norðurlöndum lifa skemur en aðrar stéttir og spilar slæmt starfsumhverfi þar stóran þátt. Páll E. Winkel, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna, segir að íslenskir lögreglumenn lifi þrettán árum skemur en aðrar stéttir og þegar kannað er hvað valdi því þá er eitt sem stendur upp á en það eru dómar fyrir árásir á lögreglumenn. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi mann í gær í átján mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fyrir að ráðast að tveimur lögreglumönnum með hnífi, og hóta barnsmóður sinni og fjölskyldu hennar líkamsmeiðingum og lífláti. Páll segir dóminn sérstakan þar sem árásirnar tvær séu verulega alvarlegar og refsiramminn sé annars vegar sex ár og hins vegar sextán ár. Þrátt fyrir langan feril afbrotamannsins og það hversu alvarleg árásin var þá fær maðurinn átján mánaða fangelsi. Páll segist ekki bara undrast dóminn heldur umfjöllun sumra fjölmiðla um hann þar sem árásin gegn lögreglumönnunum er látin liggja á milli hluta. Fyrri dómar um árásir gagnvart lögreglumönnum eru skammarlega vægir og það sendir ákveðin skilaboð út í samfélagið. Refsiramminn hafi heldur ekki þróast í takt við þróun hans í öðrum málaflokkum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Tvær tilkynningar um eld Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjá meira