Aldrei minni munur á fylkingum 18. september 2005 00:01
Sextíu og tvær milljónir Þjóðverja geta í dag ákveðið hver verður kanslari landsins næstu fjögur ár. Aldrei í nútímastjórnmálasögu Þýskalands hefur munurinn á milli fylkinga verið jafn lítill og kosningabaráttan virðist halda áfram þar til kjörstöðum verður lokað. Það var Gerhard Schröder sem ákvað að efna til kosninga ári fyrr en lög kveða á um. Samstarfsflokkurinn, Græningjar, og mörg flokkssystkin hans voru til vandræða og meirihlutinn í efri deild þingsins var nánast horfinn svo að hann taldi sér ófært að fá umbótahugmyndir sínar samþykktar á þinginu. Það er enn með öllu óljóst hvort áhættan var þess virði því það er vonlaust að spá fyrir um hvað kemur í ljós þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan átta í morgun og verða opnir til klukkan sex. Dagblaðið die Welt slær því upp að þá ljúki líka kosningabaráttunni. Stjórnmálamennirnir voru margir hverjir mættir snemma á kjörstaði þó að þeir hafi verið á ferð og flugi fram eftir kvöldi í gær og öskruðu sig margir hása af æsingi þar sem þeir reyndu að sannfæra kjósendur um að velja rétt. 62 milljónir eru á kjörskrá og er búist við því að allt að 80 prósent þeirra notfæri sér atkvæðisrétt sinn. Spurningin er bara hvern þessar milljónir ætla að kjósa. Fjórðungur kjósenda er óákveðinn og óvissan eftir því. Að sama skapi er óvíst hvað það er sem kjósendur sækjast eftir. Kosningamálin hafa verið stöðnun í efnahag landsins, mikið atvinnuleysi og svo utanríkismál, ekki síst afstaðan til stríðsins í Írak. Fjölmargir kjósendur eru hins vegar sagðir taka lítið eftir umræðunum og velja sér þann leiðtoga sem þeim líst best á, þá út frá persónuleikanum frekar en stefnunni. Kjaftasögur komust á kreik seint í gær um að Gerhard Schröder væri þegar farinn að leggja grunninn að lífi eftir pólitíkina. Hann hefur löngum þótt hafa góð tengsl við viðskiptalífið og samkvæmt fregnum nokkurra þýskra fjölmiða stefnir hann einmitt þangað. Hann á að hafa fengið tilboð frá fjárfestingabankanum Merrill Lynch um starf og laun upp á eina og hálfa milljón evra á ári, 113 milljónir króna. Talsmaður Schröders vísaði fregnunum á bug og sagði þær tóman þvætting. En þetta er þvættingur sem getur komið sér illa fyrir Schröder þar sem óákveðnir kjósendur og aðrir gætu brugðist ókvæða við. Í Washington yrði því fagnað ef Schröder tæki tilboðinu meinta því það þýddi líkast til að kanslarinn héti Angela Merkel. Fréttatímaritið Focus greinir frá því í dag að í Hvíta húsinu sé vonast til þess að Merkel hafi betur því líkast til væri hægt að vinna betur með henni en Schröder. Þessi afstaða gæti komið Schröder til góða því Þjóðverjar eru almennt lítt hrifnir af George Bush. Og fleira gæti haft áhrif. Götublaðið Bild greindi frá því í gær að fullt tungl yrði á kjördag og að áhrif þess gætu ráðið úrslitum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán