Fallið hátt og skellurinn harður 14. júní 2005 00:01 "
Tímasetning skattalækkana ríkisstjórnarinnar er kolröng. Menn vissu að það væri von á ofhitnun í hagkerfinu og það að lækka skatta kallar á niðurskurð í ríkisútgjöldum. Þetta hafa Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Seðlabankinn og OECD sagt. Aftur á móti hefur ríkistjórnin ekki tekið mark á okkur hagfræðingunum og segir að skattalækkanirnar séu ekki þensluhvetjandi vegna þess að þær séu vinnuhvetjandi", segir Ólafur Darri Andrason hagfræðingur Alþýðusambandsins. "Við erum með mestu atvinnuþátttöku af öllum þeim þjóðum sem við berum okkur saman við og ef við ætlum að taka við uppsveiflu þá eru það krakkar sem ættu að vera í framhaldsskólum sem yrði sá hópur sem yrði lokkaður út á vinnumarkaðinn. Þegar svo kemur að niðursveiflu árið 2007 eða 2008 situr þessi hópur eftir með sárt ennið, við höfum talið að þetta sé alveg galin ráðstöfun", bætir Ólafur Darri við. Samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2005 hefur einkaneysla vaxið um 9,4 prósent sem er það mesta í fimm ár. Aðspurður um hvort skattalækkunaráform ríkisstjórnarinnar séu neysluhvetjandi og þar með verðbólguhvetjandi segir Ólafur Darri: "Ef við horfum bara á tölurnar núna þá er einkaneysla að aukast mun meira en kaupmáttur. Ég geri ráð fyrir að það sem skýri þetta að mestum hluta sé aukin skuldsetning. Nú hafa menn meira aðgengi að hagkvæmu lánsfé en áður. Það sem gerist við þessar aðstæður er að Seðlabankinn sem er einn á verðbólguvaktinni hækkar vexti. Undir venjulegum kringumstæðum mundu vaxtahækkanir slá á þenslu því peningar yrðu einfaldlega dýrari og fólk myndi síður taka skammtímalán. Nú aftur á móti tekur fólk upp undir 40 ára neyslulán, vaxtamunur við útlönd eykst og þetta slær ekki á verðbólguna heldur frestar henni. Seðlabankinn kappkostar núna að styrkja krónuna sem þýðir að fallið verður hærra og skellurinn harðari."
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira