Spáð góðu laxveiðisumri 6. maí 2005 00:01
Sérfræðingur Veiðimálastofnunar spáir bæði góðu laxveiðisumri um land allt og auknum stórlaxagöngum í ám fyrir norðan og austan. Nú er aðeins rúmur mánuður í að laxveiði hefjist í ám landsins en undanfarin ár hefur hún farið stöðugt vaxandi. Reyndar var síðastliðið sumar í flokki þeirra fimm gjöfulustu undanfarna þrjá áratugi. Og veiðimenn hafa ástæðu til bjartsýni um komandi sumar miðað við þá spá sem kynnt var á ársfundi Veiðimálastofnunar í dag. Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur á Veiðimálastofnun, segir horfurnar frekar bjartar miðað við veiðina undanfarin ár. Síðasta ár hafi verið gott og bæði góðu og slæmu árin fylgist yfirleitt að. Guðni spáir einnig fleiri stórlöxum, einkum norðanlands og austan. Hins vegar verði að geta þess að fjöldi þeirra hafi minnkað á undangengnum árum. Áhugamenn um silungsveiði fá einnig jákvæðar fréttir. Veiðin á bleikju hefur verið stöðug á undangengnum tíu árum en hins vegar hafa menn verið að sjá mjög aukna sjóbirtingsgengd í mjög margar ár. Síðasta ár var líka metár í skráðri stangveiði á sjóbirtingi og urriða og á Guðni von á að það komi til með að aukast áfram.
Fréttir Innlent Mest lesið Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Erlent Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Innlent Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Innlent Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán Innlent Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Innlent Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Innlent Landskjörstjórn segir nauðsynlegt að breyta stjórnarskrá Innlent Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Innlent Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Erlent Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi á dag að meðaltali Innlent Fleiri fréttir Horft til tillagna um að minni fyrirtæki verði undanskyld jafnlaunavottun Heimurinn undrist á villimennsku Íslendinga Landskjörstjórn vill breyta stjórnarskránni og Víðir gefur lítið fyrir gagnrýni Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán „Það er rétt skilið“ Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi á dag að meðaltali Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Vill rannsaka störf sérstaks saksóknara eftir hrun Landskjörstjórn segir nauðsynlegt að breyta stjórnarskrá Elsta svæði Vopnafjarðar staðfest sem verndarsvæði Viðvaranir enn í gildi fyrir norðan Áhyggjuefni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunaraðstoð Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Alda María nýr formaður Heimdallar Um 160 fatlaðir starfsmenn hjá Ás styrktarfélagi í Kópavogi Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Forstjóri Útlendingastofnunar vildi skýr svör frá Víði um umsókn Oscars Segja ásakanir á hendur séra Friðriki tómt rugl Lömb á kafi, útlendingaumræðan og Brynjar Karl í beinni Þungir dómar fyrir að smygla fleiri lítrum af kókaíni „Ættum frekar að láta borgina skrifa undir mannréttindasáttmála“ „Þarna er gripið fram fyrir hendurnar á Alþingi“ Gæsluvarðhald framlengt aftur Alveg gáttuð á framgöngu Víðis sem hafi brotið trúnað Landris mælist áfram í Svartsengi Vilja að Aþena fylgi mannréttindastefnu borgarinnar Hefur metnað til að leiða flokkinn þrátt fyrir slæmt gengi „Ekki hægt að segja annað en fyrirgefið“ Sjá meira