Sótti um án samráðs við stjórn 6. maí 2005 00:01
Fyrrverandi alþingismaðurinn Guðjón Guðmundsson, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri dvalarheimilisins Höfða á Akranesi, segist hafa sótt um stöðuna einfaldlega vegna þess að hann taldi sig uppfylla þær hæfniskröfur sem fram komu þegar staðan var auglýst. Deilur hafa risið um forsendur fyrir ráðningu hans og hafa bæjarbúar tjáð sig um það á vef Akraneskaupstaðar að það sé pólitísk lykt af ráðningunni. Sjálfur þvertekur Guðjón fyrir það að hafa haft samráð við stjórn dvalarheimilsins eða bæjarstjórnarminnihluta Sjálfstæðisflokksins þegar hann lagði fram umsókn sína. Fram kom í auglýsingu að óskað væri eftir einstaklingi sem hefði þekkingu á stjórnsýslusviði, bókhaldsþekkingu og hæfni í mannlegum samskiptum auk þess að vera búsettur á svæðinu. Guðjón telur sig uppfylla þessar kröfur. Guðjón sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í tólf ár auk þess sem hann sat í bæjarstjórn Akraness samtals í jafn langan tíma. Eins hefur hann viðamikla reynslu af bókhaldi sem skrifstofustjóri Skipasmíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts. Það olli einnig nokkrum deilum á sínum tíma þegar Ásmundur Ólafsson fráfarandi framkvæmdastjóri var ráðinn en hann hefur hinsvegar þótt farsæll í starfi. Sigríður Gróa Kristjánsdóttir er formaður stjórnar dvalarheimilisins. Hún tók það fram í samtali við blaðamann að þótt hún hefði greitt Brynju Þorbjörnsdóttur, fyrrverandi útibússtjóra Íslandsbanka atkvæði sitt þá sé það mikilvægast að sátt skapist um nýjan framkvæmdastjóra og vill hún bjóða hann velkominn til starfa. Það sem skipti máli sé framtíð heimilisins og rekstur þess í þágu heimilismanna og starfsfólks. Aðspurð hvort ráðningin hafi verið pólitísk segir Sigríður að Guðjón hafi uppfyllt öll þau skilyrði sem sett voru fyrir ráðningunni og þar við sitji.
Fréttir Innlent Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent Fleiri fréttir Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Sjá meira