Innlent

Ávísanir á geðlyf vafasamar?

Heilbrigðisráðherra vill að Landlæknisembættið og Lyfjastofnun kanni hvort eitthvað sé bogið við markaðssetningu geðlyfja við ofvirkni og ávísanir lækna á þau en íslensk börn eiga heimsmet í notkun slíkra lyfja.. Þá vill ráðherrann að brugðist verði við mikilli fjölgun barna með ofvirkni og athyglisbrest. Ásta Ragnheiður Jóhannesdótti,r þingmaður Samfylkingar, spurði út í viðbrögð ráðuneytisins vegna þessarar fjölgunar en íslensk börn eiga heimsmet í notkunin ofvirknilyfja og hefur notkunin aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra tekur undir áhyggjur fyrirspyrjandans í svari sínu og segir þær skiljanlegar. Hann segist ætla að óska eftir því við Landlækni og Miðstöð heilsuverndar barna að skoða, á breiðari grundvelli í samráði við sálfræðiþjónustu skóla og félagsþjónustu sveitarfélaga, hvernig best verði brugðist við þeirri miklu aukningu á athyglisbresti og ofvirkni barna sem hér virðist hafa átt sér stað að undanförnu. Þá ætli hann að beina því til Landlæknis og Lyfjastofnunar að kanna sérstaklega hvort eitthvað óeðlilegt sé á seyði varðandi kynningar, ávísanir og notkun methylphenidats sem er langvirkt ritalínlyf. Notkunin borin saman við notkun annarra þjóða veki áleitnar spurningar. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á því hér á landi hvort ofvirkni kunni að vera ofgreint vandamál.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×