Innlent

Esso og Olís hækka

Olíufélagið Esso hækkaði bensínlítrann um tvær krónur og fimmtíu aura í gær og er algengt sjálfsafgreiðsluverð hjá Esso nú 105,50 krónnur. Olís fylgdi í kjölfarið í morgun með nákvæmlega sömu hækkun. Á heimasíðu Esso segir að þrátt fyrir þessa hækkun sé uppsöfnuð þörf fyrir hækkun enn meiri í ljósi þess að krónan heldur áfram að veikjast gagnvart dollar og væntingar um verðlækkun á heimsmarkaði hafi ekki gengið eftir. Reyndar fór verð á olíutunnunni niður fyrir fimmtíu dollara í fyrradag eftir að hafa komist upp í 58 dollara snemma í apríl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×