Innlent

Tekjur sveitarfélaga hækka

Tekjur sveitarfélaganna aukast um tvöhundruð milljónir króna þegar ríkið fer í fyrsta sinn að greiða fasteignagjöld af húsnæði í sinni eigu.

Ríkisvaldið hefur hingað til ekki þurft að greiða sveitarfélögum fasteignagjöld af eignum sínum. Þetta breytist hins vegar um áramót vegna samkomulags sveitarfélaganna og ríkisins um tekjustofna sveitarfélaga.

Borgarstjóri segir stefnt að því að álagningarprósenta fasteignagjalda lækki úr 0,32 prósentum í 0,27 prósent en það á að skila sömu tekjum og áður þar sem fasteignamat hækkar mikið milli ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×