Innlent

Flugleiðir gefa 530 flugmiða

Flugleiðir hafa gefið fimm hundruð og þrjátíu farþegum sem urðu fyrir óskemmtilegum töfum á flugi til og frá San Fransisco farmiða að eigin vali á flugleiðum félagsins. Tvö hundruð og sextíu manns héldu áleiðis til San Fransisco um þrjú leytið í nótt en tvö hundruð og sjötíu manns biðu þess ytra að komast í flug til Íslands. Þeir lögðu af stað laust eftir hádegi. Vélinni til San Fransisco í dag seinkar einnig um nokkurar klukkustundir. Hún fer ekki fyrr en undir miðnætti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×