Kjörstaðir opnir lengur 15. desember 2005 15:47
Kjördagur í Írak hefur gengið betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Kjörsókn þingkosningunum var miklu betri en búist var við og opnunartími kjörstaða var framlengdur um klukkustund af þeim sökum. Minnst tvær vikur eru í að endanleg úrslit liggi fyrir. Kjörstöðum lokaði klukkan þrjú í dag, en ekki tvö eins og til stóð. Ástæðan er miklu meiri kjörsókn en búist hafði verið við. Engar tölur liggja fyrir að svo stöddu, en talið er að meira en tíu milljónir manna hafi greitt atkvæði í kosningunum. Þá bendir flest til að Súnnítar hafi flykkst á kjörstaði, en eitt helsta áhyggjuefni ráðamanna í Írak í aðdraganda kosninganna var að Súnnítar myndu sniðganga þær eins og kosningar um stjórnarskrá landsins. Stjórnmálaskýrendur vonast til að góð kjörsókn þeirra verði til þess að eining ríki í landinu eftir þingkosningarnar. Uppreisnarmenn hafa þó reynt sitt til að spilla kjördeginum. Tugir árása hafa verið gerðar um allt land, en í fæstum tilvikum hefur orðið mannfall. Þó hafa minnst tveir fallið og nokkrir særst í borgunum Baghdad og Ramadí. Þá drápu lögreglumenn í Baghdad uppreisnarmann sem talið er að hafi ætlað að gera sjálfsmorðsárás. Það hve vel kosningarnar hafa gengið fyrir sig má líklega að miklu leyti rekja til víðtækrar öryggisgæslu í kringum kjörstaði. Meira en hundrað og fimmtíu þúsund írakskir lögreglumenn og þjóðvarðliðar hafa staðið vaktina í allan dag. Stjórnmálamenn í Írak hafa hver af öðrum keppst við að lofa þróun mála í dag og allir eru þeir sammála um að kosningarnar séu stórsigur fyrir lýðræðið í landinu. Endanleg úrslit kosninganna verða þó ekki ljós í bráð. Kjörstjórn tilkynnti í dag að líklega væru minnst tvær vikur uns endanlegar tölur lægju fyrir.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira