Áróður og eftirlit skilar árangri 3. ágúst 2005 00:01 "
Á heildina er litið erum við mjög ánægð með það að þetta skuli hafa verið stórslysalaus helgi. En þó að vel hafi gengið núna megum við ekki sofna á verðinum því það er óhætt að segja að í þessum tilfellum þar sem menn voru teknir fyrir ofsa- og ölvunarakstur þá hefði lítið þurft út að bregða til að þar yrðu stórslys," segir Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Frá fimmtudegi til aðfaranótt þriðjudags voru 56 teknir fyrir ölvunarakstur og 513 fyrir of hraðan akstur, að sögn Hjálmars Björgvinssonar, aðalvarðstjóra hjá ríkislögreglustjóra. Hann segir að þær tölur séu svipaðar og frá árinu á undan. Ekki er ljóst hversu margir verða sviptir ökuleyfi en það veltur í sumum tilvikum á því hversu marga punkta ökumenn hafa. Hjálmar telur að margir samverkandi þættir hafi stuðlað að stórslysalausri helgi og Einar tekur undir það. "Stærsta hlutverkið eiga ökumenn sjálfir, þeir eru yfirleitt til fyrirmyndar. En það sem spilar stóran þátt í þessu er aukið eftirlit lögreglu, umfjöllun fréttastofa fjölmiðlanna og almennur áróður. Þetta skilar sér allt," segir Einar. Hjálmar segir að umferðareftirlit lögreglu hafi ekki verið meira um verslunarmannahelgina en undanfarin ár, en telur að umferðarátak sem samgönguráðuneytið og undirstofnanir þess, Vegagerðin, ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa, hófu í lok júní skili árangri. "Svo er það tilfinning okkar að umferðin hafi dreifst meira þessa verslunarmannahelgi, fólk fór úr bænum á fimmtudeginum og stór hluti fór til baka á sunnudeginum. Ökumenn eru farnir að átta sig á aðstæðum og við viljum koma á framfæri þakklæti til þeirra," segir Hjálmar.
Fréttir Innlent Mest lesið Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent Jóhannes Valgeir er látinn Innlent Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Erlent Halla mun funda með Xi Jinping Innlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Erlent Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Innlent Fleiri fréttir Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks ÁTVR stórgræði á misnotuðu kerfi og lögreglustöð í Breiðholti „Það er ekkert ósætti eða rifrildi“ Sýkt vatnsból á Stöðvarfirði eigi brátt að heyra sögunni til Íbúum Bláskógabyggðar fjölgar og fjölgar Fangelsismál í krísu og rannsókn á morðinu á Kirk „Það virðist aldrei vera nein lausn í sjónmáli“ Heimsótti heimaslóðirnar 52 árum eftir nauðlendinguna Sitjandi formaður dregur framboðið til baka á kjördag Stebbi í Lúdó látinn Ölvaðir einstaklingar víða til vandræða „Hann fékk einfaldlega ekki þá hjálp sem hann þurfti á að halda“ Sjá meira