Meintur kinnhestur til á myndbandi 3. ágúst 2005 00:01
Atvikið þar sem Hreimi Erni Heimissyni og Árna Johnsen lenti saman á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er til á myndbandi. Myndbandið fæst þó ekki sýnt - að sögn til að vernda Vestmannaeyjabæ. Árna og Hreimi ber engan veginn saman um hvað gerðist. Stöð 2 hefur óskað eftir að fá að sýna myndbandið en Hreimur sakar Árna um að hafa slegið sig í andlitið af engu tilefni. Eigendur myndbandsins eru að gera heimildarmynd um þjóðhátíð í Eyjum og neita að láta það af hendi, þótt það sýni í raun hvað gerðist. Þeir segjast þurfa að vernda Vestmannaeyjarbæ en myndin er unnin í samstarfi við hann. Hreimur Örn vill að myndbandið verði sýnt. Hann skorar á þá sem hafa myndbandið undir höndum að koma fram með það því þarna sé um sönnunrgagn að ræða. Páll Scheving Ingvarsson, meðlimur Þjóðhátíðarnefndar, sagði einnig í samtali við fréttastofu að hann vildi að mynbandið yrði sýnt opinberlega. Hann telur nauðsynlegt að úr því fáist skorið hvað raunverulega hafi gerst því umræðan geri ekkert annað en að skaða þjóðhátíðina. Árni Johnsen segir í yfirlýsingu í dag að sér hafi ekki verið kunnugt um að hópur söngvara ætti að syngja kveðjulag að loknum brekkusöngnum. Segir Árni í yfirlýsingunni að hann hafi ákveðið - sem kynnir - að ljúka dagskránni svo að hópur ungmenna hlypi ekki að sviðinu áður en leifar varðeldsins höfðu verið hreinsaðar. Hann hefði með öðrum orðum tekið völdin í sínar hendur til að afstýra hugsanlegu slysi. Í yfirlýsingunni segir að þegar hann hafi í hita leiksins í þröng á sviðinu þrifið til hljóðnema hefði hann rekist slysalega á Hreim sem kom að hljóðnemanum í sömu mund. Í lokin segir Árni að hann hafi beðið Hreim afsökunar og að full sátt sé um málið milli þeirra. En þessu er Hreimur ekki sammála og segir atvikið einfaldlega ekki hafa verið svona. Aðspurður hvort Árni sé þá að ljúga segist Hreimur ekki ætla að segja meira en þetta. Páll Scheving segir að von sé á yfirlýsingu næstu daga frá nefndinni um atvikið. Aðspurður hvort Árni myndi syngja brekkusöng á þjóðhátíð að ári sagði Páll að málin væru í skoðun. Aðspurður hvort hann ætli að kæra Árna segir Hreimur að hann langi ekki til þess. Þetta sé orðinn nógu mikill baggi á sér og sinni fjölskyldu og söngarinn vill að þessu ljúki. „En ég vil að þessu ljúki ekki í óvissu. Ég vil að hið sanna komi í ljós þannig að enn og aftur: ef það eru til upptökur af þessu - komið þið fram með þær,“ segir Hreimur.
Fréttir Innlent Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira