Hægri hönd al-Zarqawi skotinn 27. september 2005 00:01
Lík 22 manna fundust sundurskotin í borginni Kut í Írak í gær. Þá var skýrt frá því að bandarískar og íraskar hersveitir hefðu fellt næstráðanda al-Kaída í Írak um helgina. Líkin í Kut voru í borgaralegum klæðum en þau eru talin vera af sjíum. Ekki er vitað hvenær þeir voru teknir af lífi en talið er að margir dagar geti verið síðan. Hendur þeirra höfðu verið bundnar og bindi sett fyrir augun. Yfirvöld skýrðu frá því í gær að Abdullah Abu Azzam, háttsettur félagi í al-Kaída í Írak, hefði fallið í bardögum við íraska og bandaríska hermenn á sunnudagsmorguninn. Azzam er sagður hafa stýrt ýmsum hryðjuverkaárásum al-Kaída í landinu undanfarin misseri, meðal annars lýsti hann ábyrgð á tilræðinu við Izzadine Saleem, forseta ráðgjafarráðs Íraka, í maí 2004. Hann er auk þess sagður hafa fjármagnað flutninga á erlendum vígamönnum sem streymt hafa inn til landsins undanfarin misseri. Ekki er víst hvaða áhrif drápið á Azzam mun hafa. Bandaríkjaher hefur margoft sagst hafa haft hendur í hári háttsettra hryðjuverkamanna en þrátt fyrir það hefur ekkert lát orðið á uppreisninni í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira