Erlent

Húsleit í Sarajevo

Herlið NATO framkvæmdi leit á heimili Mladjens Kendjic í gær. "Kendjic var einn af lífvörðum Ratko Mladic, fyrrum hershöfðingja, og er hann grunaður um að veita Mladic stuðning enn þann dag í dag," segir Derek Chappel, erindreki NATO í Sarajevo. Mladic er ásamt Radovan Karadzic efstur á lista eftirlýstra stríðsglæpamanna úr Bosníustríðinu. Beggja hefur verið leitað síðan 1995 og bíða þeirra ákærur fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×