Erlent

Tveir ráðherrar segja af sér

Boðað hefur verið til kosninga á Grænlandi. Hans Enoksen landsstjórnarformaður tilkynnti þetta á fjárlagafundi í Landsþinginu nýverið. Kosningar til Landsþings verða haldnar þann 22. nóvember næstkomandi. Tveir ráðherrar landsstjórnarinnar hafa sagt af sér embætti eftir að hafa legið undir ásökunum að nota opinbert fé til einkaneyslu á borð við áfengiskaup og ferðir á veitingastaði. Erfiðleikar í samstarfi stjórnarflokkanna hafa staðið mánuðum saman.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×